Kjúklingalæri á grillið

Stefán Ólafur mælir með kjúklingalæri á grillið. Mynd/Þröstur Ernir.
Stefán Ólafur mælir með kjúklingalæri á grillið. Mynd/Þröstur Ernir.

„Fólk setur nánast hvað sem er á grillið. Fisk, grænmeti, pizzur, brauð og fleira,“ segir Stefán Ólafur Jónsson matreiðslumeistari á Greifanum á Akureyri. Sumarið er gengið í garð með tilheyrandi grillmat á borðum landsmanna. „Kjúklingabringur eru mjög vinsælar en mig langar hins vegar að mæla með kjúklingalærkjöti. Það er stundum hægt að fá úrbeinað og skinnlaust lærkjöt úti í búð en ef ekki þá má kaupa kjúklingalæri og úrbeina sjálfur. Kjötið er fitu- og bragðmeira en bringukjötið."

"Það er óhætt að fullyrða að auðveldara sé grilla lærkjöt heldur en bringur þannig að það sé safaríkt,“ segir Stefán og bætir við að nú sé boðið upp á beinlaus læri við góðar undirtektir hjá Grillþjónustu Greifans Veitingahúss.

Í prentútgáfu Vikudags má finna uppskrift af kjúklingalæri ásamt meðlæti sem Stefán deilir með lesendum.

Nýjast