Þeir Gauti Elfar Arnarson, Þorlákur Sigurðsson og Björn Heiðar Rúnarsson héldu út til Danmerkur í morgun í æfinga- og keppnisferð í siglingum. Þeir félagar eru allir meðlimir í siglingaklúbbnum Nökkva á Akureyri og munu taka þátt í Open Danish Championship um næstkomandi helgi, þar sem bestu siglingamenn Danmerkur verða meðal keppenda.