Kennslurjóður lagt í rúst

Kennslurjóður við Giljaskóla á Akureyri var stórskemmt og nánast eyðilagt í vikunni. Ungur nemandi við skólann uppgötvaði verknaðinn þegar hann heimsótti rjóðrið. Starfsmaður skólans sem Vikudagur ræddi við í morgun segir ljóst að mikið hafi gengið á. „Þarna voru bekkir, borð, girðingar, kofar og fleira sem nemendur skólans höfðu smíðað og það var allt lagt í rúst. Það er ömurlegt að svona hlutir fái ekki að vera í friði. Krakkarnir eru mjög daprir yfir þessu enda hafa þeir lagt mikla vinnu í þetta.“

Ekki er vitað hverjir voru þarna að verki en málið er komið inn á borð lögreglunnar á Akureyri.

throstur@vikudagur.is

Nýjast