Lið KA/Þórs sigraði á Opna Norðlenska æfingamótinu í handknattleik kvenna sem fram fór í KA-heimilinu sl. helgi. KA/Þór vann alla sína leiki. Norðanliðið sendi tvö lið til leiks en einnig spiluðu Fylkir og Afturelding á mótinu. Fylkir hafnaði í öðru sæti með fjögur stig, Afturelding í þriðja sæti með tvö stig en KA/Þór 2 í neðsta sæti án stiga.