KA/Þór hélt uppteknum hætti í seinni hálfleik og náði mest níu marka forystu um miðjan hálfleikinn, 22:13, og allt leit út fyrir öruggan sigur heimamanna. HK neitaði hins vegar að gefast upp og náði að minnka muninn niður í þrjú mörk, 23:26, þegar þrjár mínútur lifðu leiks og hleyptu smá spennu í leikinn. Heimamenn héldu hins vegar dampi og innbyrtu fjögurra marka sigur að lokum.
Martha Hermannsdóttir og Unnur Ómarsdóttir voru markahæstar í liði KA/Þórs með 7 mörk hvor, og Arna Valgerður Erlingsdóttir skoraði 6 mörk, þar af 3 úr vítum. Í marki KA/Þórs átti Selma Sigurðardóttir mjög góðan dag og varði 15 skot.Hjá HK var Líney Rut Guðmundsdóttir og Lilja Pálsdóttir markahæstar með 4 mörk hvor. Þá varði Ólöf Ragnarsdóttir 11 skot í marki HK.
KA/Þór hefur nú unnið tvo leiki í röð í deildinni og er komið með sjö stig í 7. sæti deildarinnar, en HK er með fimm stig í 8. sæti deildarinnar.