Karlakór Akureyrar-Geysir tekur þátt í opnunarhátíð menningarhússins Hofs á Akureyri, um helgina. Kórinn syngur á
laugardagskvöld, en þá verður Hof opnað upp á gátt og allir boðnir velkomnir í húsið kl. 21:00-01:00. KAG hefur upp raust
sína kl. 21:15 og kemur fimm sinnum fram þetta kvöld, á ýmsum stöðum í Hofi. Þá verða einsöngvarar
kórsins áberandi.
Í lokaatriði kvöldsins kl. 23:30 verður KAG í stóru hlutverki, þegar byltingarhetjan Kingimars fær bæjarbúa í lið
með sér við að yfirtaka menningarhúsið Hof.