Kári Steinn var nálægt Íslandsmetinu í 10 km hlaupi

Kári Steinn Reynisson kemur í mark í 10 km hlaupinu í kvöld á frábærum tíma.
Kári Steinn Reynisson kemur í mark í 10 km hlaupinu í kvöld á frábærum tíma.

Langhlauparinn Kári Steinn Karlsson náði ekki að bæta Íslandsmetið í 10 km hlaupi, í Akureyrarhlaupinu í kvöld, eins og hann stefndi að, en hann var þó grátlega nærri því. Hann kom lang fyrstur í mark á 30 mínútum og 18 sekúndum en Íslandsmetið er 30 mínútur og 11 sekúndur. Kári Steinn var ánægður með árangur sinn, enda bætti hann sinn besta árangur um eina sekúndu. Hann sagði eftir hlaupið að töluverður mótvindur hafi verið á leiðinni frá Akureyrarflugvelli og norður að Hofi, þar sem hlaupið hófst og endaði. Kári Steinn sagðist jafnframt nokkuð þungur á sér, hann væri að æfa mjög stíft um þessar mundir og m.a. að hlaupa 200 km á viku. Er það liður í undirbúningi hans fyrir Ólympíuleikana í London, þar sem hann keppir í maraþoni. Alls tóku um 170 hlaupar þátt í Akureyrarhlaupinu og gátu þátttakendur hlaupið 5 km, 10 km eða hálft maraþon, sem er 21 km.

Nýjast