Félög ungra sjálfstæðismanna á landinu kallast þessa dagana á um Vaðlaheiðargöng en eins og fram kom hér á síðunni fyrir helgi samþykkti meirihluti stjórnar SUS, Sambands ungra sjálfstæðismanna gagnrýna ályktun um göngin á föstudag. Síðar sama dag sendi stjórn Varðar félags ungra sjálfstæðismanna á Akureyri frá sér ályktun sem gekk í þveröguga átt og göngunum fagnað. Ályktun varðar er svohljóðandi:
Vörður, félag ungra sjálfstæðismanna á Akureyri, fagnar samþykkt Vaðlaheiðarganga á Alþingi. Vaðlaheiðargöng eru brýnasta framkvæmdin í samgöngumálum Norðausturkjördæmis og mjög mikilvægt skref í samgöngumálum landsins alls.
Ánægjulegt er að þingmenn Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi, þeir Kristján Þór Júlíusson og Tryggvi Þór Herbertsson, hafi stutt málið. Jafnframt harmar Vörður, að aðrir þingmenn flokksins hafi ekki séð sér fært að fara að þeirra fordæmi.
Engin vegaframkvæmd á Íslandi hefur verið hrein einkaframkvæmd. Hins vegar verða Vaðlaheiðargöng greidd að fullu af veggjöldum, sem notendur ganganna munu greiða og þar með er ekki verið að taka verkið fram fyrir önnur verkefni í kjördæminu. Verkið er stórt skref í þá átt að auka einkaframkvæmdir í samgöngumálum á Íslandi. Erfitt er að sjá hvernig nokkrir sjálfstæðismenn geta verið á móti slíkri framkvæmd.
Vörður harmar jafnframt, að margir virðast líta á allar framkvæmdir utan suðvesturhornsins sem kjördæmapot."