KA býður verðugt verkefni í 8- liða úrslitum VISA- bikarkeppni karla en liðið dróst gegn Íslandsmeisturum FH á útivelli
þegar dregið var í hádeginu í dag höfuðstöðvum KSÍ. Leikið verður í 8- liða úrslitum sunnudaginn
11. júlí og mánudaginn 12. júlí. Ekki er orðið ljóst hvaða leikir fara fram á hvorum degi. Liðin sem mætast í
átta liða úrslitum eru eftirfarandi:
- Fram - Valur
- KR - Þróttur R.
- Víkingur Ól. - Stjarnan
- FH - KA