Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, sæmdi níu Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í dag. Forsetinn sæmir íslenska ríkisborgara fálkaorðunni tvisvar á ári, hinn 1. janúar og 17. júní.
Þeir sem hlutu orðuna eru eftirtaldir:
1. Árni Bergmann rithöfundur, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til bókmennta og menningar
2. Gísli B. Björnsson grafískur hönnuður og fyrrverandi skólastjóri, Reykjavík, riddarakross fyrir brautryðjandastarf í íslenskri grafík og framlag til menntunar hönnuða
3. Hilmar Snorrason skólastjóri Slysavarnaskólans Sæbjargar, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til öryggismála sjómanna
4. Jóna Berta Jónsdóttir fyrrverandi matráðskona, Akureyri, riddarakross fyrir störf að mannúðarmálum
5. Kristín Steinsdóttir formaður Rithöfundasambands Íslands, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til íslenskra bókmennta
6. Kristján Ottósson blikksmíðameistari og framkvæmdastjóri Lagnafélags Íslands, Reykjavík, riddarakross fyrir forystu í lagnamálum
7. Óli H. Þórðarson fyrrverandi framkvæmdastjóri Umferðarráðs, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til öryggismála og umferðarmenningar
8. Sigrún Einarsdóttir glerlistamaður, Kjalarnesi, riddarakross fyrir framlag til eflingar íslenskrar glerlistar
9. Valgerður Sigurðardóttir yfirlæknir, Reykjavík, riddarakross fyrir forystu á vettvangi líknarmeðferðar