Jólasveinarnir í Dimmuborgum í Mývatnssveit bjóða gestum og gangandi í heimsókn í helli í borgunum á Jónsmessunótt. Heimboðið verður 23. Júní frá kl. 22-01.00. Þá verður mikil gleði þar sem jólasveinarnir spjalla, syngja og segja sögur.
Í tilkynningu frá jólasveinunum segir að mikil spenna ríki í hellinum vegna þessa heimboðs, en undirbúningur gangi vel.
Jónsmessunóttin, aðfaranótt 24. júní, er ein þeirra fjögurra nátta í íslenskri þjóðtrú sem taldar eru hvað magnaðastar og þá geta alls kyns dularfullir hlutir gerst.
Eitt af því sem magnast upp og öðlast sérstakan lækningamátt á Jónsmessunóttinni er döggin.