Jólasöngvaka til styrktar Mæðrastyrksnefnd Akureyrar

Minjasafnið á Akureyri stendur fyrir jólasöngvöku til styrktar Mæðrastyrksnefnd á Akureyri laugardaginn 19. desember kl 14. Ljúfir tónar þekktra jólasöngva munu óma í Minjasafnskirkjunni þegar þau Íris Ólöf Sigurjónsdóttir og Hjörleifur Hjartarson syngja jólin inn og hlýja áheyrendum um hjartarætur með ómþýðum söng sínum.  

Jólasöngvakan er nokkurs konar söngferðalag  fyrir alla fjölskylduna sem leiðir áheyrendur um bæði létta, skemmtilega, hátíðlega en umfram allt þjóðlega jólasöngvahefð okkar Íslendinga. Enginn aðgangseyrir er á söngvökuna en þeir sem eru aflögufærir geta styrkt Mæðrastyrksnefd með frjálsu framlagi á staðnum. Takamarkað sætapláss er í gömlu sveitakirkjunni en þröng mega sáttir sitja.

Gömlu jólatrjánum á Minjasafninu hefur fjölgað enn frekar og ágætur skógur á íslenskan mælikvarða er sprottinn upp í stemningu liðinnar tíðar í sýningunni; Akureyri - bærinn við Pollinn. Jólatrén eru í eigu Eyfirðinga. Margir þeirra skreyta enn heimili sín með þessum heimasmíðuðu jólatrjám sem eru allt í senn skemmtileg, hátíðleg og jafnvel á stundum undarleg á að líta. Öll eiga þau það sammerkt að hafa veitt gleði á jólunum á því heimili sem þau hafa staðið og gera enn. Á sýningunni; Allir krakkar, allir krakkar - líf og leikir barna, má nú sjá gamlar jólalegar ljósmyndir frá Akureyri, jólakort liðinna tíma, jólaskraut og síðast en ekki síst ófá leikföng sem vafalaust hafa veitt börnum, sem í dag eru mömmur og pabbar, afar og ömmur eða jafvel langafar og langömmur, mikla gleði á aðfangadagskvöld. Einnig stendur sýningin; Barnadraumar, enn yfir en þar er skyggnst inn í draumaheim barna.

Fjölbreytta og forvitnilega skemmtun fyrir alla fjölskylduna má því sækja á Minjasafnið á Akureyri. Safnið er opið 19. og 20. desember kl 14-16. Enginn aðgangseyrir er á safnið í tilefni jólanna.

Nýjast