Jóhannes Gunnar Bjarnason hefur verið ráðinn þjálfari kvennaliðs KA/Þórs í handbolta og tekur hann við liðinu af Guðlaugi Arnarssyni. Jóhannes er margreyndur þjálfari og eru miklar vonir bundnar við störf hans, að sögn Erlings Kristjánssonar formanns handknattleiksdeildar KA. Kvennalið KA/Þórs leikur í efstu deild og hafnaði liðið í 7. sæti í vetur en þá léku níu lið í deildinni. Næsta vetur leika 12 lið í efstu deild kvenna. Erlingur segir að jafnframt sé unnið að því að ganga frá samningum við tvo erlenda leikmenn, markmann og útileikmann. Einnig er Erlingur vongóður um að tveir íslenskir leikmenn gangi til liðs við KA/Þór fyrir komandi keppnistímabil.