Ágætt jafnvægi er nú komið á vatnsbúskap vatnsveitu Norðurorku á Akureyri og ástandið þokkalegt á Svalbarðsströnd. Eins og fram hefur komið í fréttum brugðust notendur á Akureyri mjög skjótt við þegar þeir voru í síðustu viku beðnir um að spara kalda vatnið þar sem birgðastaða í miðlunargeymum fór niður fyrir öryggismörk. Fram kemur á vef Norðurorku að eins og staðan er í dag þá er ekki ástæða til þess að óttast vatnsskort, en þó ber að hafa í huga að vatnsgæfni aðal vatnslinda Norðurorku í Hlíðarfjalli (Hesjuvallalindir) og í Glerárdal (Sellandslindir) er mun minni en í meðalári.
Því er þeim tilmælum beint til viðskiptavina að fara almennt sparlega með vatnið. Nægt vatn er á Vöglum í Hörgárdal en því vatni þarf hins vegar að dæla í bæinn með ærnum tilkostnaði og því full ástæða til þess að komast hjá miklum dælingum í lengstu lög. Þá vilja forsvarsmenn Norðuroku einnig benda á að þessa dagana er unnið að endurbótum á hluta af Sellandslindum og því er ekki að koma eins mikið vatn þaðan eins og annars væri.
Einnig er unnið að endurbótum á Garðsvíkurlindum ofan við bæinn Garðsvík á Svalbarðsströnd sem þjónar vatnsveitu Norðurorku í Svalbarðsstrandarhreppi. Undanfarnar vikur hefur verið unnið að endurbótum á hluta lindarsvæðisins. Verið er að endurvirkja lindir á suðurhluta svæðisins með það að markmiði að lindirnar séu öruggari, auk þess sem næst í eitthvað meira vatn en áður.
Líkt og aðrar náttúrulegar lindir á vinnslusvæðum Norðurorku hafa lindirnar í Garðsvík gefið nokkuð eftir í þurrkatíðinni undanfarnar vikur og sama á við um svonefnd Halllandsból sem eru sunnar í Vaðlaheiði. Hefur því verið óskað eftir því við notendur í Svalbarðsstrandarhreppi að þeir gæti að vatnsnotkun sinni og fari sparlega með vatnið, er fram kemur á vef Norðurorku.