Jafnt hjá Grindavík og Þór/KA

Grindavík og Þór/KA gerðu frekar óvænt 2:2 jafntefli í dag á Grindavíkurvelli í fyrstu umferð Pepsi- deildar kvenna í knattspyrnu. Þór/KA komst tvisvar yfir í leiknum
með mörkum frá Bojönu Besic og Mateju Zver og hafði 2:0 forystu í hálfleik. Dagmar Þráinsdóttir jafnaði hins vegar metin í tvígang fyrir heimastúlkur með mörkum beint úr aukaspyrnu með tíu mínútna millibili í síðari hálfleik og tryggði Grindavík stig úr leiknum.

Úrslitin væntanlega vonbrigði fyrir Þórs/KA stúlkur, sem spáð er þriðja sæti deildarinnar en Grindavík einungis áttunda sæti. Næsti leikur Þórs/KA og jafnframt fyrsti heimaleikur liðsins verður þriðjudaginn 18. maí, er liðið fær Breiðablik í heimsókn.

Nýjast