Í sumar hefur sérútbúinn bíll á vegum Já keyrt um landið og tekið 360° myndir fyrir kortavef Já.is
Nú er förinni heitið til Grímseyjar á föstudag og Hríseyjar á laugardag ef allt gengur að óskum.
,,Gaman er að segja frá því að þetta er fyrsta ferðin okkar til Grímseyjar, en við keyrðum um Hrísey sumarið 2015," segir í tilkynningu frá Já.
Þetta er sjötta sumarið sem bíllinn keyrir um landið, en fyrsta ferðin var farin sumarið 2013.