01. september, 2010 - 13:42
Skipulagsdeild boðar til opins íbúafundar, fyrir hönd Akureyrarbæjar, um staðsetningu nýs hjúkrunarheimilis, næstkomandi fimmtudag. Fundurinn fer
fram í Síðuskóla og hefst kl. 20.30 en fundarstjóri er Eírkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri.
Dagskrá fundarins:
- Oddur Helgi Halldórsson, formaður bæjarráðs
- Brit Bieltvedt, frá öldrunarheimilum Akureyrar, kynnir Eden hugmyndafræðina
- Fanney Hauksdóttir, arkitekt frá AVH, kynnir útfærslu á Eden hugmyndafræðinni í byggingum
- Pétur Bolli Jóhannesson, skipulagsstjóri, kynnir hugmyndir að staðsetningu við Vestursíðu og í Naustahverfi
- Opnar umræður og fyrirspurnir
Allir velkomnir