Hvalaskoðunarbátur tekinn í tog

Hvalaskoðunarbáturinn Náttfari. Drepið var á vél skipsins í dag vegna gagntruflana og báturinn tekin…
Hvalaskoðunarbáturinn Náttfari. Drepið var á vél skipsins í dag vegna gagntruflana og báturinn tekinn í tog.

Í dag um kl. 13:45 varð vart gangtruflana í Náttfara og drepið á aðalvél skipsins. Aflandsvindur var og engin hætta á ferð og því ákveðið að taka bátinn í tog af öðrum bát félagsins. Til að gæta fyllsta öryggis var Björgunarsveitinni Garðari gert viðvart og fór hún á vettvang á hraðbát.

Björgunarsveitin bauðst til að ferja farþega Náttfara í land, samtals 9 manns og var ákvörðun tekin um að þiggja það þar sem öðrum kosti hefði orðið veruleg seinkun á heimkomu farþega. Um kl. 15:30 voru farþegar komnir í höfn á Húsavík.

Skömmu eftir að farþegar yfirgáfu Náttfara, hafði áhöfn tekist að átta sig á ástæðum gangtruflananna og leysa vandamálið og sigldi Náttfari svo fyrir eigin vélarafli til hafnar.

 Þess má geta að áður en gagntruflanir hófust, hafði hvalaskoðun gengið með eindæmum vel, sést hafði hnúfubakur sem stökk margsinnis einungis fáa metra frá bátshlið.

Nýjast