Fyrirtækið Hvalaskoðun Akureyri hefur fengið úthlutað lóð við Oddeyrarbót 2, austan við Menningarhúsið Hof en þar hefur fyrirtækið verið með starfsemi. Nú stendur til að byggja þjónustuaðstöðu fyrir hvalaskoðun og á að nýtast bæði heimamönnum sem og ferðamönnum.
Fyrirtækið óskaði á dögunum eftir því að hækka nýtingarhlutfall lóðarinnar og að reisa tveggja hæða byggingu en fyrri deiliskipulagsskilmálar gerðu ráð fyrir að heimilt yrði að byggja á lóðinni allt að 200 fermetra stórt hús á einni hæð. Þrjár lóðir eru við Oddeyrarbót og gert ráð fyrir að sambærilegir skilmálar gildir fyrir þær allar.
Bæjarprýði
Í erindi Hvalaskoðunar kemur fram að til standa að byggja hús sem verði bæjarprýði, vönduð efni notuð bæði úti og inni .Efnisvalið miðast við bryggjuumhverfið. Inngangar og eða sölulúgur verða á þremur hliðum hússins og tryggja lifandi mannlíf umhverfis bygginguna. Húsið verður tæpir 300 fermetrar að stærð og á þeirri efri verður fjölnotasalur með stórum glerflötum sem lýsast upp á kvöldin og yfir vetur.