Ákveðið var að fresta flugi til Húsavíkur sem fara átti nú kl 14:00, en slökkviliðsmenn í Reykajvík mynduðu
verkfallslínu fyrir dyrunum þar sem farþegar áttu að fara um. Hér norðan heiða var einnig viðbúnaður og hugðust
slökkviliðsmenn setja upp tálma á veginum frá Húsavíkurflugvelli í Aðaldal til Akureyrar. Verkfallið hófst kl 08:00 í morgun
og stendur til miðnættis, eða í 16 tíma.