Hugmyndin um hreyfistrætó snýst um að foreldrar taki sig saman um að skiptast á að ganga með hópi barna í skólann. Stoppistöðvum er komið upp með skipulögðum hætti þar sem börnin eru "tekin upp í". Horft er til þess að hreyfistrætó verði fyrir 6-8 ára börn og er markmiðið að auka hreyfingu, en rannsóknir sýna að hreyfing eykur andlega vellíðan, þjálfar hreyfifærni, eykur líkamshreysti og minnkar líkur á sjúkdómum. Markmiðið með hreyfistrætó er að: Efla hreyfingu barna í samneyti við foreldra; Minnka umferð og mengun í kringum skólann; Þjálfa barnið í lífsleikni; Auka sveigjanleika fjölskyldunnar á morgnana; Auka félagsleg tengsl.
Skólanefnd telur verkefnið mjög áhugavert og hvetur grunnskóla og foreldrafélög þeirra til að skoða með hvaða hætti þau geta tekið þátt.