Hlaupurum gefst kostur á einstöku hlaupaævintýri laugardaginn 8. september nk. þegar efnt verður til fyrsta almenningshlaupsins í Grímsey. Aldrei áður hefur almenningshlaup verið hlaupið norðar hér á landi. Hlaupið er með tilstyrk flutningafyrirtækisins TVG Zimsen. Ræst verður í Norðurheimskautsbaugshlaup TVG Zimsen kl. 11.00 við félagsheimilið Múla í Grímsey og verður hlaupinn hringur í eynni, sem er tæplega 12 km langur.
Tvær vegalengdir verða í boði annars vegar einn hringur 12 km og hins vegar tveir hringir 24 km. Tímataka verður í báðum leiðunum. Boðið verður upp á drykki á drykkjarstöðvum á leiðinni. Skráning er í hlaupið á vefnum www.hlaup.is annars vegar í 12 og hins vegar 24 km. Skráningu lýkur mánudaginn 3. september kl. 22.00. Ekkert skráningargjald er í hlaupið. Í tengslum við hlaupið mun Norlandair fljúga til Grímseyjar að morgni 8. september og til baka aftur síðdegis þann dag.
Í boði eru á milli 30 og 40 flugsæti og því þurfa menn að hafa hraðann á til þess að tryggja sér flugsæti. Pantanir á sætum eru í gegnum Flugfélag Íslands á Akureyrarflugvelli í síma 460 7000. Aðrir möguleikar á því að fara út í Grímsey felast í því að fljúga með Flugfélagi Íslands föstudaginn 7. september og aftur til baka sunnudaginn 9. september eða fara með Sæfara frá Dalvík til Grímseyjar föstudaginn 7. september og til baka mánudaginn 10. september. Allar nánari upplýsingar um hlaupið er að finna á www.hlaup.is.