Róbert Þórhallsson lagði í gær upp í hringferð um Ísland á reiðhjóli sem hann kallar Hjólað til góðs og safnar um leið áheitum sem renna óskipt til Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna en Róbert hefur staðið vaktina með þeim síðustu átta ár. Hægt er að styrkja átakið með símtali eða SMS-skilaboðum. Sé hringt eða sent í númer 903-3001 er styrkt um 1000 krónur en 3.000 krónur sé hringt í 903-3003.
Baldvin Sigurðsson, félagi Róberts, fylgir honum eftir á lánsbifreið en fjölmörg fyrirtæki hafa styrkt framtakið með ýmsum varningi og búnaði. Fótboltakappinn Gylfi Sigurðsson gaf átakinu t.a.m. áritaða Tottenham-treyju.
Róbert lagði í hringferðina frá skrifstofu SKB í Hlíðasmára í gær og áætlað er að hann verði á Akureyri mánudaginn 13. ágúst. Áhugasamir geta fylgst með ferð Róberts á facebook-síðu ferðarinnar, www.facebook.com/1332km.