Hita var hleypt á Þórsvöllinn á Akureyri í gær

Það er óhætt að segja að það hafi verið brotið blað í sögu knattspyrnunnar á Akureyri þegar starfsmenn Þórsvallar kveiktu á hitakerfinu í aðalvellinum í gær. Er þetta fyrsti grasvöllurinn í bænum sem er upphitaður. Ekki er nema rétt mánuður þar til fyrsti heimaleikur Þórs er settur á Þórsvöllinn á þessu sumri en fyrsti leikur liðsins verður sunnudaginn 9. maí.  

Að sögn starfsmanna á Þórsvellinum er það mikið vandaverk að hita völlinn upp og ekkert má fara úr skorðum. Í lagnakerfinu eru u.þ.b. 60 þúsund lítrar af frostlegi sem þarf að hita upp hægt og rólega og eins gott að vera vel vakandi við þetta mikla vandaverk. Já það verður gaman að fylgjast með á næstu dögum og sjá þær breytingar sem völlurinn á eftir að taka þegar líf fer að kvikna að nýju, segir á vef Þórs.

Nýjast