Lögreglan á Akureyri verður með aukinn viðbúnað á löggæslu um verslunarmannahelgina og verður fjölgun á mannskap í bænum og við þjóðveginn. Búist er við fjölda fólks til Akureyrar um helgina líkt og undanfarin ár þar sem hátíðin Ein með öllu fer fram. Mynstrið hefur þó verið að breytast undanfarin ár, að sögn Gunnars Jóhannssonar lögreglufulltrúa á Akureyri.
Það eru svo margar hátíðir yfir sumartímann núna á landinu, nánast um hverja helgi. Verslunarmannahelgin er því ekki lengur þessi toppur og hún var áður, segir Gunnar. Hann segir verslunarmannahelgina hér á Akureyri hafa gengið vel undanfarin ár og fest sig í sessi sem fjölskylduhátíð. Það er ekki þessi útihátíðarbragur ennþá þar sem menn eru á götufyllerí allan daginn. Við höfum því engar áhyggjur af þessari helgi, segir Gunnar.
Tiltölulega rólegt var á Akureyri í nótt og fremur fámennt á tjaldsvæðum bæjarins. Umferðin norður er hins vegar farinn að þyngjast og búist bið straumi fólks í dag og á morgun.