Heitur fimmtudagur á Græna hattinum í kvöld

Ljótu hálfvitarnir lofa góðri skemmtun á Græna hattinum um helgina.
Ljótu hálfvitarnir lofa góðri skemmtun á Græna hattinum um helgina.

Jazzklúbbur Akureyrar í samstarfi við Græna hattinn stendur fyrir tónleikaröðinni "Heitir fimmtudagar". Í kvöld er það tríóið After Hours sem stígur á svið og hefjast tónleikarnir kl. 21.00. Tríóið skipa þau Erla Stefánsdóttir söngkona, Sigmar Þór Matthíasson bassaleikari og Baldur Tryggvason gítarleikari. Öll eru þau útskrifuð með burtfararpróf frá Tónlistarskóla FÍH. Tónlistin sem tríóið spilar er að stórum hluta jazz lög úr amerísku söngbókinni (standardar) en einnig hin ýmsu lög úr öllum áttum sem þau hafa útsett fyrir þessa hljóðfæraskipan.Lög á borð við Fly me to the moon, All of me, The girl from Ipanema, Black coffee og Tunglið, tunglið taktu mig, verða flutt ásamt ýmsu öðru góðgæti.
Síðustu tónleikar Ljótu hálfvitana norðanlands í sumar verða á Græna hattinum á Akureyri nk. föstudags- og laugardagskvöld. Það hafa þeir reyndar oft gert áður, en rannsóknir hafa sýnt að Hálfvitar standa sig alltaf best í öruggu og kunnuglegu umhverfi. Þess vegna telja þeir sér líka óhætt að lofa góðri skemmtun. Sjómannaslagarinn “Ég ræ” situr nú í fjórða sæti vinsældalista Rásar 2 og mun hljóma á tónleikunum ásamt öllum hinum Hálfvitaslögurunum, sem fjalla einmitt margir hverjir um sjómannslífið en þess á milli um önnur helstu hreyfiöfl mannlífsins; ást og bjór. Tónleikarnir hefjast kl. 22.00 bæði kvöldin.

 

Nýjast