Í verkefninu verða rannsökuð samfélagsleg áhrif vegna þróunar innviða í geimnum á norðurslóðum í samhengi við öryggis- og umhverfisstefnur Noregs, Svíþjóðar og Íslands. Þetta kemur fram á heimasíðu HA.
Verkefnið er nýtt, til þriggja ára og er leitt af Katharina Glaab hjá the Norwegian University of Life Sciences (NMBU). Adam mun vera í samstarfi við rannsakendur frá NMBU, Háskólann í Osló í Noregi, Háskólann í Roskilde í Danmörku og Háskólann í Stokkhólmi ásamt rannsóknarstofnun varnarmála í Svíþjóð (Swedish Defense Research agency).
Fyrsti vinnufundur verkefnisins verður á Akureyri haustið 2023.