Háskólar samræma hugbúnað

Háskólasvæðið á Sólborg. Mynd: Hörður Geirsson.
Háskólasvæðið á Sólborg. Mynd: Hörður Geirsson.

Á dögunum náðist sá áfangi í samstarfi opinberu háskólanna, að nú nota þeir allir fjórir sama upplýsingakerfi fyrir skráningu nemenda og samskipti nemenda og kennara. Upplýsingakerfið gengur undir heitinu Ugla og felur í sér safn hugbúnaðarkerfa sem eru sérhönnuð fyrir háskólastarfsemi og styðja við ýmsa umsýslu og þjónustu innan háskóla. Helstu markhópar eru nemendur, kennarar og aðrir starfsmenn. Þeir háskólar sem nú taka upp hið nýja kerfi eru Háskólinn á Akureyri, Landbúnaðarháskóli Íslands og Hólaskóli-Háskólinn á Hólum. Öll gögn háskólanna þriggja hafa nú verið flutt yfir í hið nýja kerfi og framundan er áframhaldandi þróun þess til að þjóna sem best þörfum allra skólanna. Uglan leysir af hólmi upplýsingakerfið Stefaníu sem þróað var innan Háskólans á Akureyri og hefur undanfarin ár þjónað Landbúnaðarháskóla Íslands og Hólaskóla auk HA.

Sameiginleg upplýsingakerfi fela í sér verulega hagræðingu þar sem hugbúnaðarþróun innan háskólanna fjögurra fer nú fram á einum stað. Ávinningurinn felst einnig í auknum gæðum og rekstraröryggi og því að með sameiginlegu átaki er auðveldara að mæta kröfum um nýja þjónustuþætti. Þá er innleiðing Uglunnar lykill að frekara samstarfi opinberu háskólanna þar sem samræmd skráningarkerfi og samræmt viðmót tölvukerfa auðvelda bæði nemenda- og starfsmannaskipti milli skólanna. Uglan hefur verið í þróun á vegum Háskóla Íslands í meira en tíu ár en upphaflega var um að ræða samstarfsverkefni Háskóla Íslands og Kennaraháskóla Íslands.

Samstarfi opinberu háskólanna var hrundið af stað að frumkvæði ráðherra mennta- og menningarmála sumarið 2010 og miðar að eflingu íslenskra háskóla, aukinni hagkvæmni og því að halda uppi háskólastarfsemi úti um landið. Rektorar háskólanna fjögurra sitja ásamt fleirum í sjö manna verkefnisstjórn sem leiðir verkefnið.

Nýjast