Handverkshátíð og Landbúnaðarsýning um helgina

Sýningarsvæðið við Hrafnagilsskóla er að taka á sig nýja mynd fyrir Handverkshátíðina. Mynd: Margrét…
Sýningarsvæðið við Hrafnagilsskóla er að taka á sig nýja mynd fyrir Handverkshátíðina. Mynd: Margrét Þóra.

Handverkshátíðin á Hrafnagili hefst á morgun, föstudaginn 10. ágúst kl. 12:00 og á sama tíma verður Landbúnaðarsýningin. Handverkshátíðin er nú haldin í tuttugasta sinn, en Búnaðarsamband Eyjafjarðar fagnar 80 ára afmæli sínu á árinu og efnir af því tilefni til veglegrar sýningar í samstarfi við Handverkshátíðina. Fjölmargir dagskrárliðir eru í boði alla dagana, en sýningunum lýkur á mánudag, 13. ágúst.

Vel á annað hundrað sýnendur taka þátt og kynna fjölbreytt handverk, afurðastöðvar og vélaumboð taka þátt svo dæmi séu nefnd. Samtökin Beint frá býli verða einnig á svæðinu og landbúnaðarháskólarnir kynna starfsemi sína ásamt flestum búgreinasamtökum landsins. Bændaskóli verður settur á laggirnar fyrir börn og ungmenni og hann á vegum Bústólpa.

Félag ungra bænda á Norðurlandi stendur fyrir landskeppninni „Ungbóndi ársins“ og félagið sér einnig um kálfasýningu þar sem börn keppa í teymingu og skreytingu smákálfa. Landssambands kúabænda heilgrillar naut og Landssamband sauðfjárbænda heilgrillar lamb. Þá verður húsdýrasýning, fjárhundasýning og hestasýning auk sýningar og keppni í rúningi.

Á svæðinu verður veitingasala og lifandi tónlist alla dagana og vegleg kvöldvaka í samkomutjaldi á laugardagskvöld. Handverkshátíðin fékk um 15 þúsund heimsóknir í fyrra og er búist við að enn fleiri láti sjá sig á sýningarsvæðinu um komandi helgi.

Nýjast