Svæðið við Dettifoss vestan ár er lokað vegna asahláku og mikilla vatnavaxta. Hætta er á því að fólk lendi í lífshættu og hætt er á gróðurskemmdum, segir á vef Vatnajökulsþjóðgarðs. Vonast er til að hægt verði að opna svæðið á fimmtudagkvöld eða á föstudag en frekari upplýsingar þar um verða veittar síðar.
Lögreglan á Norðurlandi eystra hvetur ferðafólk til að fara að þeim fyrirmælum sem gefin hafa verið.