Gunnlaugur Jónsson þjálfar meistaraflokk KA

Gunnlaugur Jónsson skrifar í dag undir samning við knattspyrnudeild KA þess efnis að hann taki við þjálfun mfl. félagsins í knattspyrnu. Þar með lýkur þessari miklu óvissu sem hefur verið í kringum liðið síðusta mánuðinn en miklar vangaveltur hafa verið í gangi um hver yrði arftaki Deans Martin og ýmsir menn nefndir til sögunnar. Samningurinn er til þriggja ára.



 

Gunnlaugur er fæddur árið 1974 og gríðarlega reynslumikill sem leikmaður. Hann hefur verið atvinnumaður með KFC Uerdingen, Motherwell FC, Kongsvinger og Örebro SK á ferli sínum auk þess að leika með ÍA, KR og Selfoss hér á landi. Með ÍA varð hann Íslandsmeistari árin 1996 og 2001 og svo hefur hann þrisvar orðið bikarmeistari. Tvívegis með Skaganum og svo KR. Hann lagði skóna á hilluna síðasta haust eftir að hafa spilað 9 leiki með Selfossi þar sem hann var einnig þjálfari. Kappinn á einnig að baki 12 A-landsleiki og fjölda yngri landsleikja.Hann hóf þjálfaraferil sinn sem spilandi þjálfari á Selfossi fyrir tímabilið 2009. Hann gerði gott verk þar og undir hans stjórn unnu Selfyssingar fyrstu deildina og komust upp í úrvalsdeild. Fyrir lokaumferð mótsins það sumar spurðist svo út að Gunnlaugur væri búinn að semja við Val og olli það miklu fjaðrafoki eins og flestum fótboltaáhugamönnum ætti að vera í fersku minni.Það mál endaði með því að Gunnlaugur tók við Val haustið 2009 og þar starfaði hann í sumar. Undir hans stjórn hafnaði liðið í 7. sæti deildarinnar og í lok september komust Gunnlaugur og Valur að samkomulagi um starfslok.

Nýjast