Guðmundur B. Guðmundsson skipar 1. sæti á lista Framsóknar

Guðmundur Baldvin Guðmundsson hlaut 66% gildra atkvæða í fyrsta sæti í prófkjöri Framsóknarmanna á Akureyri. Petrea Ósk Sigurðardóttir varð í öðru sæti. Alls greiddu 1.106 einstaklingar atkvæði í prófkjörinu sem var opið öllum þeim sem kosningarétt hafa í sveitarfélaginu í sveitarstjórnarkosningunum sem fram fara þann 29. maí nk. Gild atkvæði voru 1.064 en auð og ógild 42.  

Kosið var í sex efstu sætin og varð niðurstaða prófkjörsins þessi, eftir að tekið hafði verið tillit til óska frambjóðenda og laga Framsóknarflokksins um kynjakvóta:

1. sæti Guðmundur Baldvin Guðmundsson

2. sæti Petrea Ósk Sigurðardóttir

3. sæti Sigfús Karlsson

4. sæti Erlingur Kristjánsson

5. sæti Guðlaug Kristinsdóttir

6. sæti Sigríður Bergvinsdóttir

Nýjast