Göngugatan verður lokuð fyrir umferð vélknúinna ökutækja frá og með 1. maí. Opið verður fyrir ökutæki með aðföng frá kl. 7-10 alla daga. Aðgengi fyrir P-merkta bíla og ökutæki viðbragðsaðila verður ávallt tryggt. Opnað verður aftur fyrir umferð þann 30. september.
Lokunin er með sama sniðið og árið 2025 og er í samræmi við samþykkt Akureyrarbæjar um tímabundnar lokanir gatna fyrir umferð vélknúinna ökutækja sem er að finna á akureyri.is.
Frá þessu segir á akureyri.is