Göngu- og hjólastígurinn í Vaðlareit kom vel undan vetri, á næstu vikum verður hafist handa við að koma rafmagni á stígleiðina og lagningu malbiks. Í haust er áætlað að hefja vinnu við gerð áningarstaða og koma upp lágstemmdri lýsingu á stígleiðinni.
Það er afar ánægjulegt að sjá hversu margir nýta stíginn til útivistar.
Það er heimasíða Svalbarðsstrandarhrepps sem sagði frá.