Viðgerðum á gluggum í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri lýkur í þessum mánuði en lagfæringar hafa staðið yfir í um eitt og hálft ár. Tveir gluggar voru farnir að leka og var í kjölfarið ákveðið að þétta þá alla. Einnig þurfti að laga hljóðeinangrun á milli hæða en aðeins eru um tvö ár síðan Hof var tekið formlega í notkun. Blikk-og tækniþjónustan ehf. sem sér um viðgerðirnar. Miðað við umfang verksins er ljóst að kostnaður við viðgerðirnar er umtalsverður en hann er greiddur að stærstum hluta af verktökum sem sáu um uppsteypu hússins.
throstur@vikudagur.is