Félagar úr Skákfélagi Akureyrar komu færandi hendi í Hjalteyrargötuna í dag. Þeir héldu Jólahraðskákmót í gærkvöldi og rann þátttökugjaldið óskipt til Súlna, alls 25.000 kr. Á myndinni má sjá Guðmund Guðmundsson varaformann Súlna taka við gjöfinni frá gjaldkera Skákfélagsins, Smára Ólafssyni.
Við þökkum kærlega fyrir stuðninginn
Frá þessu segir á heimasíðu Súlna