Fyrri bæjarstjórar á Akureyri voru einnig bæjarfulltrúar

Eirkur Björn Björgvinsson, bæjarstjóri á Akureyri er með 985.000 kr. í mánaðarlaun, sem er svipað og fyrirrennari hans var með og til viðbótar fær hann greiðslur samkvæmt akstursdagbók, eins og fram kom í frétt á vikudagur.is í gær. Fyrri bæjarstjórar voru með1.175.000 kr. á mánuði en inn í því voru bæjarfulltrúalaun, samkvæmt upplýsingum Odds Helga Halldórssonar formanns bæjarráðs.  

Oddur telur því eðlilegt að þau séu talinn hluti launakjara og þetta sé því lækkun um rúm 16%. Fyrir utan bæjarfulltrúalaunin voru fyrri bæjarstjórar með 1.065.000 kr. í laun á mánuði og því sé nú um að ræða lækkun upp á 7,5%. Þá ber þess einnig að geta að búið var að lækka laun bæjarstjóra á Akureyri, seint á árinu 2008 um 10%, í kjölfar bankahrunsins. Þannig að megnið af kjörtímabilinu (góðan helming) var bæjarstjórinn á Akureyri með rúm 1.300.000 kr. í laun á mánuði.

Nýjast