Fyrirtæki um fullvinnslu á görnum til útflutnings stofnað

Tveir sláturleyfishafar á Norðurlandi hafa stofnað fyrirtækið Iceland Byproducts um fullvinnslu á görnum til útflutnings og verkun á vömbum. Norðlenska hafði forgöngu um stofnunina en SAH Afurðir á Blönduósi eru einnig í hópi eigenda. Fjallalamb á Kópaskeri og Sláturfélag Vopnfirðinga munu að auki leggja inn afurðir hjá IB. Vinnslan verður á Húsavík og sjö munu starfa við hana í haust.  

Iceland Byproducts er stofnað í samvinnu við írska fyrirtækið Irish Casings og munu tveir starfsmenn frá Írlandi verða hér á landi í haust og hafa yfirumsjón með vinnslunni. Garnir hafa verið hálfverkaðar hérlendis og það verður gert áfram í einhverjum mæli í haust, en Reynir B. Eiríksson framleiðslustjóri Norðlenska segir í frétt á vefsíðu Norðlenska, vonast til þess að fleiri sláturleyfihafar leggi inn garnir til hins nýja fyrirtækis í framtíðinni.

Hann segir markmið sláturleyfishafanna það að nýta betur aukaafurðir sem falla til við sauðfjárslátrun og að auki minnki það magn úrgangs sem fer til förgunar. Starfseminni verði ýtt úr vör nú í haust og í framhaldinu verði sniðnir af þeir agnúar sem upp kunna að koma í framleiðslunni.  Í framtíðinni sé svo stefnan að færa út kvíarnar og vonandi taki þá einnig fleiri sláturleyfishafar þátt.

Garnirnar verða seldar til Egyptlands þar sem þær verða flokkaðar og síðan notaðar utan um pylsur af ýmsu tagi. Reynir gerir ráð fyrir að í haust verði unnar 240 til 250 þúsund garnir á Húsavík. Hjá Iceland Byproducts verða einnig verkaðar vambir til útflutnings. Þær verða seldar til Gana og notaðar í súpur og annað slíkt. Norðlenska hefur undanfarið selt bein á svipaðar slóðir.

Nýjast