19. febrúar, 2010 - 12:31
Umhverfisnefnd fagnar því að Eyjafjarðarsveit og Flugstoðir ohf hafi samþykkt að taka þátt í kostnaði við fuglatalningu í
óshólmum Eyjafjarðarár árið 2010, en 10 ár eru nú síðan síðasta talning var gerð. Umhverfisnefnd samþykkti að
fela Jóni Birgi Gunnlaugssyni forstöðumanni umhverfismála að ganga frá samningi við Sverri Thorstensen og Ævar Pedersen fyrir hönd nefndarinnar.
Umhverfisnefnd hafði óskað eftir því við Eyjafjarðarsveit og Flugstoðir ohf að kostnaði við verkefnið yrði skipt jafn á milli
sveitarfélaganna tveggja og Flugstoða ohf.