Fósturduftreitur í undirbúningi

 „Í Reykjavík er sérstakur fósturduftreitur, en því miður er enginn slíkur reitur fyrir hendi hérna á Akureyri og við viljum gjarnan bæta úr því. Vonandi verður formleg ákvörðun tekin á næstunni um að gera slíkan reit, við höfum ákveðnar hugmyndir um staðsetningu í kirkjugarðinum. Eftir að ákvörðun hefur verið tekin þarf að hanna reitinn, allt tekur þetta sinn tíma,“ segir séra Guðrún Eggertsdóttir prestur við Sjúkrahúsið á Akureyri.

Hún segir að sorg vegna fósturláts fái gjarnan minni viðurkenningu samfélagsins en önnur sorg, oft vegna þess að fáir viti af væntanlegu barni eða missi þess. „Það er því mikilvægt að slíkur reitur sé til staðar. Fólk vill gjarnan hafa jarðneskar leifar barnsins, sem ekki öðlaðist líf, nærri og hafa ákveðinn stað til að kveikja á kertum og eiga kyrrláta stund á fallegum og kyrrlátum stað.“ Á morgun, fimmtudag, verður haldin minningarstund vegna fósturláta. Minningarstundin verður í Höfðakapellu á Akureyri og hefst klukkan 16:30

karleskil@vikudagur.is

 

 

Nýjast