Í hljómsveitinni hafa leikið ýmsir hljóðfæraleikarar frá Tyrklandi, Búlgaríu, Danmörku, Svíþjóð og
Íslandi. Í ársbyrjun 2009 kom út fyrsti geisladiskur sveitarinnar en hann var tekinn upp í Plovdiv í Búlgaríu haustið 2008. Á
þessum diski naut Haukur liðveislu hins frábæra búlgarska harmóníkuleikara Borislav Zgurovski en hann stýrði upptökum. Á diskinum er
að finna eldfjörug þjóðlög frá Búlgaríu, Grikklandi o.fl. Diskurinn fékk afar góðar viðtökur og hefur m.a. verið
spilaður í Búlgarska ríkisútvarpinu og segja innfæddir að ekki sé hægt að greina að þarna fari að hluta erlendir
hljóðfærleikarar höndum um balkönsku tónlistina.
Með Hauki leika Borislav Zgurovski á harmóníku, Ásgeir Ásgeirsson á tamboura, Þorgrímur Jónsson á bassa og Erik Qvick á
slagverk.