Fjölmargar athugasemdir hafa borist við miðbæjarskipulagið

Alls hafa borist 46 athugasemdir bréflega við tillögu að nýju deiliskipulagi austurhluta miðbæjarins á Akureyri og að auki undirskriftalistar með um 3.800 undirskriftum. Samkvæmt upplýsingum Péturs Bolla Jóhannessonar skipuslagsstjóra er ekki um nákvæma tölu að ræða, sem gæti hækkað eða lækkað.  

Ekki sé búið að yfirfara nöfnin og athuga hvort sömu nöfn koma fyrir oftar en einu sinni á listunum eða að nöfn séu frá öðrum sveitarfélögum. Pétur Bolli segir að skipulagsnefnd muni fara yfir athugasemdirnar og svara efnislega og meta hvort gera eigi breytingar á tillögunni í samræmi við innkomnar athugasemdir. Að því loknu farið málið til bæjarstjórnar til afgreiðslu. Hvenær af því verði sé ekki hægt að segja til um á þessu stigi.

Nýjast