Þrátt fyrir að júlí hafi verið frekar blautur og svalur það sem af er, segir Sigurður þokkalegan fjölda gesta hafi komið það sem af er mánuði. Mestur er fjöldinn í skóginum um helgar en nokkuð er þó um að fjölskyldur stoppi við í lengri tíma. „Það er alltaf eitthvað flæði í þessu yfir vikuna og fólk að stoppa í 3-4 daga í senn. Það hafa alltaf verið um 12 og upp í 17 þúsund gistinætur yfir sumarið og það stefnir í annað eins núna," segir Sigurður. Búast má við að fjöldi gesta yfir helgi í Vaglaskógi nái hámarki síðustu helgina í júlí, en sú helgi er jafnan stærsta ferðahelgin í skóginum.
Sigurður segir gesti skógarins hafa verið til fyrirmyndar í sumar og lítið um alvarlegar uppákomur. „Það kemur varla fyrir að það séu einhver læti, þetta er ekkert eins og þetta var hér árum áður."