Fjölbreytt dagskrá á Vetrar- íþróttahátíð ÍSÍ um helgina

Um helgina verður ýmislegt í boði í tengslum við Vetraríþróttahátíð ÍSÍ á Akureyri.  Þar má helst nefna innanhúss skíðagöngumót sem verður haldið á Glerártorgi laugardaginn 13. febrúar kl 13:00.  Snjór sem framleiddur hefur verið með snjóbyssu við hlið torgsins verður fluttur inn á torgið og rúmlega 30 metra braut smíðuð við innganginn að Rúmfatalagernum.   

Líklegt má telja að þetta sé einsdæmi á Íslandi og jafnvel þó víðar væri leitað. KKA akstursíþróttafélag verður með sleðaspyrnu á Leirutjörn við Skautahöllina á Akureyri á föstudaginn og hefst fjörið kl 20:00. Á sunnudaginn verður ÍsCross á mótorhjólum við skautahöllina frá kl. 14.00-16.00. Í Hlíðarfjalli verður skíðanámskeið fyrir fatlaða sem stendur yfir alla helgina. Síðast en ekki síst verður stórsýningin Vetrarsport haldin í Boganum á laugardag og sunnudag. Nánari upplýsingar um viðburðina sem og dagskrá Vetraríþróttahátíðar ÍSÍ í heild sinni má finna á www.vmi.is/vh2010

Nýjast