Fjárhagsrammar fyrir fastanefndir Hörgársveitar samþykktir

Á fundi sveitarstjórnar Hörgarsveitar nýlega voru lögð fram drög að fjárhagsrömmum fastanefnda fyrir árið 2013. Í drögunum kemur fram að gert er ráð fyrir að heildarskatttekjur sveitarfélagsins á árinu 2013 verði 378 milljónir króna og að rekstarafgangur verði 25 milljónir króna, þannig að um 7-8 milljónir króna verði til framkvæmda, þegar afborganir lána hafa verði inntar af hendi. Sveitarstjórn samþykkti að fjárhagsrammar fastanefnda vegna vinnslu fjárhagsáætlunar sveitarfélagsins fyrir árið 2013 verði sem hér segir:

·       Félags- og jafnréttisnefnd                   20,5 millj. kr.

·       Fræðslunefnd                                    220,0 millj. kr.

·       Menningar- og tómstundanefnd          80,0 millj. kr.

·       Skipulags- og umhverfisnefnd            20,0 millj. kr.

·       Atvinnumálanefnd                                 2,5 millj. kr.

Á sama fundi var Hanna Rósa Sveinsdóttir endurkjörin oddviti sveitarstjórnar og Axel Grettisson endurkjörinn varaoddviti, bæði til loka kjörtímabils sveitarstjórnarinnar.

 

 

Nýjast