Fimmtíu milljónir í viðhald á Kristnesi

Stjórnvöld hafa ákveðið að verja 500 milljónum til átaks um viðhald opinberra fasteigna um land allt.  Af þeirri upphæð koma sextíu milljónir í hlut Sjúkrahússins á Akureyri.
Samkvæmt frétt frá FSA hefur framkvæmdastjórn sjúkrahússins ákveðið að fimmtíu milljónum skuli varið til að ljúka endurnýjun á húsnæði legudeilda á Kristnesspítala en það húsnæði er frá 1927.  Tíu milljónum verður varið til að endurnýja lagnakerfi í A-byggingu sjúkrahússins sem er frá 1953.  Ljóst er að þessi viðbótar fjárveiting skiptir verulegu máli fyrir FSA, auk þess að hafa jákvæð áhrif á atvinnuástand hér á svæðinu.

Nýjast