Í kvöld var fyrsta dínamíthleðslan sprengd í Vaðlaheiðargöngum. Ekki var um öfluga sprengingu að ræða, fimmtán rúmmetrar af efni voru sprengdir. Til að koma í veg fyrir slys voru mottur setar fyrir bergið. Umferð um þjóðveginn var stöðvuð á meðan sprengt var.
Fyrsta formlega hleðslan verður sprengd eftir rúma viku.