Fimm erlendir ferðamenn voru fluttir til aðhlynningar á slysadeild Sjúkrahússins á Akureyri, FSA, eftir að bíll þeirra valt við
Ljósavatn í Þingeyjarsveit um kl. 17.00 í dag. Ferðamennirnir, þrír karlar og tvær konur frá Hong Kong, voru á leið til Akureyrar
þegar óhappið varð. Samkvæmt upplýsingum lögreglu á staðnum, sluppu karlarnir að mestu með skrekkinn en önnur konan fékk
höfuðáverka og grunur var um innvortis meiðsli hjá hinni.
Svo virðist sem ökumaðurinn hafi misst bílinn út í hægri kant og af malbikinu með hægri hjólin, sveigt honum inn á veginn aftur,
þar sem bíllinn fór að snúast á veginum og svo útaf, hægra megin. Talið er að bíllinn hafi farið eina velta áður en
hann hafnaði á hjólunum í mýrlendi, en snéri þar í öfuga akstursstefnu. Svo virtist sem bíllinn væri töluvert skemmdur.