Auk þessa er einn þremenninganna grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna og í bifreið hans fannst einnig smáræði af kannabisefnum. Að loknum skýrslutökum voru mennirnir látnir lausir og telst málið upplýst. Sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.