Félag verslunar og skrifstofufólks Akureyri og nágrenni 80 ára í dag

Félag verslunar og skrifstofufólks Akureyri og nágrenni fagnar 80 ára afmæli í dag en það var stofnað 2. nóvember 1930.  Í desember 1930 eru skráðir félagar 26, en í dag eru fullgildir félagar um 1300. Tilgangur félagsins er að vinna að bættum kjörum og hagsmunum félagsmanna sinna. Í tilefni þessara tímamóta er skrifstofa félasgins í Skipagötu opin gestum til kl. 18.00, heitt er á könnuninni og allir velkomnir.  

Félagssvæði FVSA nær yfir Akureyri, Dalvík, Ólafsfjörð, Siglufjörð, Eyjafjarðarsýslu og Þingeyjarsýslu vestan Vaðlaheiðar. Fyrsti formaður FVSA var Halldór Aspar og fram til ársins 1954 var þriggja manna stjórn.  Fyrsta konan Ragnheiður Jónsdóttir settist í stjórn árið 1936 í stöðu ritara. Árið 1937 varð Kristbjörg Dúadóttir formaður félagsins og gegndi því um tveggja ára skeið, segir m.a. á vef félagsins. Núverandi formaður er Úlfhildur Rögnvaldsdóttir. Á skrisfstofu félagsins í Skipagötu 14 eru nú þrír starfsmenn í fullu starfi, Úlfhildur formaður, Kristín Þorgilsdóttir og Eiður Stefánsson og í hálfu starfi er Guðrún Guðmundsdóttir. Á Siglufirði er félagið aðili að rekstri skrifstofu stéttarfélaganna að Eyrargötu 24b, starfsmaður þar er Margrét Jónsdóttir. 

Nýjast